Ég klæddi mig upp og hélt út í dembuna sem hafði hrjáð suðurhluta Parísar í allan dag. Dæmigerður sunnudagur, verður að segjast. Stefnuna tók ég á stærsta jólamarkaðinn í Frakklandi, sem átti að vera við Arc de la Défense. Ég hlakkaði reyndar ekkert til, enda flestir þessir jólamarkaðir eins, og mér finnst þeir ekkert skemmtilegir. Þetta var bara það eina sem mér datt í hug að gera.
Þegar á leiðarendann var hins vegar komið mætti ég einungis afgirtu jólaþorpinu, öll ljós slökkt og tilkynningaskilti þar sem á stóð: Jólamarkaðurinn 28. nóvember. Mér var samt eiginlega alveg sama.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Hrikalega minnir þessi færsla mig á hann Bert Ljung
Ég skal reyna að hindra það að slíkt gerist aftur. Annars minnti mig á að hann væri í þínu uppáhaldi.
Jú hann er í uppáhaldi, fleiri svona blogg.
Þú skalt ekki búast við því! Ég er of meðvitaður núna.
Skrifa ummæli