miðvikudagur, 12. nóvember 2008

Golfklúbbur Reykjavíkur

Þetta eru svo sannarlega tímar mikilla breytinga! Nú fyrir stuttu var ég að fá boð um það að ég hefði fengið inngöngu í GR, einungis þremur mánuðum eftir að ég skilaði inn umsókn. Kemur það mér skemmtilega á óvart þar sem að ég var látinn vita af því að ég þyrfti að öllum líkindum að bíða hátt í þrjú ár!

Það eru greinilega margir sem hafa þurft að leggja kylfurnar á hilluna að undanförnu. Ekki get ég ímyndað mér af hverju.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta blogg þitt er algjörlega að slá í gegn hjá mér. Hver færslan annarri betri:

#1 Alveg sammála þér með þessa byggingu, hún væri sú glæsilegasta á Íslandi, en er ekki einu sinni eftirtektarverð í flestum löndum Evrópu.

#2 Þetta World Class mál er allt hið áhugaverðasta. Trúi ekki öðru en að hið íslenska greiði þessu sænska fyrirtæki eitthvað fyrir nafnið en tali sem minnst um það.

#3 Glæsilegt að þú sért kominn í píanónám. Guðrún Dalía getur eflaust kennt þér sitthvað í þeim efnum. Maður getur fyrst talist lærður maður, eða maður meðal manna þegar maður getur spilað nokkrar sónatínur á stórglæsilegan flygil í betri stofunni.

Já, og til hamingju með GR.

-JHJ

Nafnlaus sagði...

Sammála honum Uni Arge, þú ert heldur betur að slá í gegn.

Persónulega finnst mér stigagangurinn flottari en þessi bygging. Frank Gehry hannaði held ég Hraunbæinn ásamt Alvari Alto.

Það fyrst sem þú gerir þegar við hittumst verður að þú munt spila fyrir mig Berceuse in Db major, Opus 57 eftir Chopin eða Rhapsody in G minor Op.79 No.2 eftir Brahms.

-B"CB"B

Auðbergur sagði...

Ef maður pælir í því, varðandi WorldClass, að þá gæti það verið að þar sem að hið sænska WorldClass var stofnað árið 1983 en hið íslenska 1985, að Bjössi hafi verið á vappinu um Svíþjóð og séð einhverja litla líkamsræktarstöð og hugsað með sér:

„Mikið djöfulli er þetta gott nafn! Ég gæti kannski bara notað þetta nafn á mín stöð. Það er ekki einsog það verði eitthvað úr þessarri holu hérna!“

Annars er mér nokkurn veginn sama. Kalla ekki allir þetta Laugar í dag?

--
Brynjar, ég verð bara að segja að það kemur mér lítið á óvart að þér þyki stigagangurinn þinn flottari, eins heimakær og þú ert.