mánudagur, 17. nóvember 2008

Það er greinilega allt hægt

Ekki þótti mér nóg að skokka mína 8 km. um daginn, því nú í kvöld bætti ég um betur og fór heila 18 km! Titillinn segir allt sem segja þarf. Það er greinilega allt hægt, enda telst ég seint til íþróttasinnaðra einstaklinga. Hér er leiðin sem ég fór:

Það var reyndar gríðarlega erfitt að skokka seinustu sjö eða átta hundruð metrana og leyfði ég mér að hvíla mig nokkuð á þeim spotta. Með þessu áframhaldi verð ég farinn að hlaupa hundruði kílómetra þegar ég kem heim!

Hins vegar sá ég hina mögnuðustu sjón á þessu skokki mínu. Það var Eiffel turninn lýstur upp blár, og á þeirri stundu sem ég var að skokka framhjá honum byrjaði hann allur að blikka, einsog með þúsundum stjarna sem lýstust til skiptis. Það er gríðarlega erfitt að lýsa svona, en þetta var alveg magnað. Hérna fann ég eitthvað svipað á YouTube:

http://www.youtube.com/watch?v=f6_ZDbiqecg

En að sjá þetta með berum augunum er allt önnur upplifun!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæll Auðbergur,

þetta með Effel-turninn, það er náttúrulega alveg frábær upplifun, en mikið vildi ég að stjörnurnar blikuðu svona fallega hér heima núna.............

Blogg slóðin þín var að berast til okkar í kvöld, það var frábært að kíkja inn hjá þér, eða réttara sagt, á skokkbrautina, þetta með píanónámið líst okkur mjög vel á, ekki veitir nú af að fá eitthvað annað en feil nótur slegnar inn í þetta þjóðfélag.

Með golfið, skokkið er frábær undirstaða fyrir golfið, mig hlakkar til að takast á við þig þar...........

Kveðja úr Brekkubænum.

Auðbergur sagði...

Já, ég verð nú að kunna að spila á fjölskyldu-píanóið sem Addý gaf mér í fyrra! En ég mun nú samt lofa ykkur einhverjum feilnótum á þessum fyrstu dögum og mánuðum! Sérstaklega þar sem ég hef ekki ráðið úr píanóleysinu hér úti. Engar æfingar ráðlagðar fyrst um sinn.

Mér varð reyndar hugsað til ykkar nú í kvöld og ég ætlaði að hringja, en eitthvað féll það á milli hluta. Ég heyri í ykkur við fyrsta tækifæri.