þriðjudagur, 18. nóvember 2008

Einkunnir

Nú í dag fékk ég mína sjöttu einkunn af átta, og hafa þær flestar legið í hærri helminginum. Hérna er listinn:

Fjármál fyrirtækja: 16,5/20 - Ég er gríðarlega vonsvikinn yfir þessarri einkunn. Ég átti að geta miklu meira á þessu prófi, og ég vona að það verði bara til þess að þetta endurtaki sig ekki í lokaprófinu.
Inngangur að fjármálum: 17,5/20
Inngangur að bankakerfinu: 9/15
- Veit ekki hvað ég get sagt við þessu. Slæm einkunn, en einsog er í tísku að segja í dag, þá var þetta bara alls ekki mín sök! Ég varpa allri ábyrgð á kennarann.
Stjórnun: A-
Rekstrarhagfræði: 18,75/20
Fjármálamarkaðir: 17,5/20

Meðaleinkunn fyrri hluta annarinnar er því 8,225 af 10, sem ég vil helst reyna að hífa upp yfir níu. Ég veit samt ekki hvernig ég á að fara að því með þennan kennara í bankatímanum, og svo fór ég í próf í dag sem mér gekk alveg skelfilega í. Það er ekki síðan að ég fór í skyndipróf í Stærðfræði 103 í Árbæjarskóla sem að mér hefur gengið álíka illa. Ég talaði þó við kennarann um að fá að taka nýtt próf. Ég reikna með því að ég fái það. Lykillinn að velgengni í skóla er að eiga í góðu sambandi við kennara sína. Það opnar margar dyr.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gott samband við kennara hjálpar mikið, meina sjáðu bara mig.

Auðbergur sagði...

Já, þú nærð að hanga þarna inni...

Nafnlaus sagði...

Blessaður félagi. Ég sá í einhverjum pistli frá þér að þú hefðir farið á bílasýngu í október. Ég var einmitt þar, og var alveg hreint búinn að steingleyma að þú værir búsettur í Parísarborg!

Ég sé að námið hjá þér gengur ágætlega þarna þannig að eg vænti þess að Franskan þvælist ekki mikið fyrir þér? Hvernig er fyrirkomulagið á náminu þarna, ertu í bekk með ákveðnum hópi sem heldur sig saman í öllum fögum eða eitthvað svoleiðis?