Það verður óvenju mikið um að vera næstu daga:
Annað kvöld verður haldin þakkargjörðarhátíð að amerískum sið. Það þykir víst á allan hátt fínt að tengja sig við Bandaríkin eins mikið og hægt er. Allavega í þessum skóla. Veit ekki hvort það sama gildir um Frakka almennt.
Á föstudaginn verður svo minn vikulegi píanótími kl. 14 og á laugardagskvöld var mér boðið í sendiráðið til að fagna 90 ára fullveldisafmælis Íslands. Sem er reyndar mjög viðeigandi á meðan pöpullinn á Íslandi ræðir um að pakka saman, gefast upp og flýja til ESB.
Á sunnudag fer ég í reiðtúr með „skólafélaginu,“ ef það skyldi kalla. Það verður ábyggilega mjög gaman þar. Þetta er dagsferð og verður kennsla í boði. Ég er að gera margt hérna sem mér hefði ekki dottið í hug að mér stæði til boða, og hefði ábyggilega ekki gert heima á Íslandi. Ég veiti mér klapp á bakið fyrir það. Þá er bara tvennt eftir að gera áður en ég dey: fara í lax og skotveiði.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Það er ótrúlegt hvað þú ert orðinn upptekinn í útlandinu! Ég vona bara að þú hafir það gott!
Kveðja,
Auðbergur.
Svo býð ég þér í lax næsta sumar...
kv.
Auðbergur
Hahahahah þú ert frábær:)
Þú gætir nú kannski dregið hann Gísla með þér í lax og notað allar græjurnar sem hann keypti sér í sumar. Ég held hann hafi notað þær einu sinni, í vatni sem var enginn fiskur:)
Þetta verður allavega tíminn til þess að fara í lax, eflaust nóg af lausum ám og ábyggilega stórlækkað verð.
hahaha bara tvennt? er þá listinn tómur?
Kveðja,
Stóri bróðir
ÉG er nú ekki vanur að biðja um mikið!
Skrifa ummæli