þriðjudagur, 13. janúar 2009

Óvæntur gestur

Mér brá heldur betur í brún þegar ég las síðasta tölvupóstinn frá Soffíu, stelpu sem var í tungumálaskólanum í Bordeaux með mér. Hún tók sig til og keypti bara flugmiða - Stokkhólmur-París - og ætlar að koma í heimsókn í Maí. Reyndar hafði ég mörgum sinnum sagt við hana að hún ætti að koma, enda ekki löng leiðin - eða hitt þó heldur. En við hverju á maður að búast þegar maður slengir fram slíku tilboði? Ekki það að engin meining hafi fylgt því. Ég er bara hissa.

Þetta er reyndar hin fínasta og skemmtilegasta stelpa, svo að ég veit ekki hverju ég ætti að kvíða. En ég geri það nú samt.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er Soffía ekki ljóshærða stelpan sem var með þér seinasta daginn í Bourdox?

skj