sunnudagur, 11. janúar 2009

London kallar

Oft hefur borist til tals hjá okkur, nokkrum úr bekknum, að heimsækja Freyju okkar, sem er að læra fatahönnun í Bretlandi. Alltaf hef ég tekið vel í það og frekar ýtt á eftir því En heldur betur tók ég vel í það þegar þetta kom upp nú í vikunni, þar sem að ég er staddur í París og þarf ekki að borga hið ógurmikla fluggjald frá Íslandi. Nú er svo ákveðið að við munum öll hittast þann 23. janúar heima hjá Freyju í London. Ég fer reyndar einum degi fyrr.

Ferðaáætlunin er eftirfarandi:

París - London: 22. janúar, kl. 20:50
London - París: 25. janúar, kl. 7:52

En þá hefst önnur vitleysan! Hvar er passinn? Fyrr í haust týndi ég gamla vegabréfinu, pantaði mér nýtt, borgaði 10 þúsund kr. fyrir, fann svo gamla passann, týndi nýja og nú stend ég í dag með ógilt vegabréf, 10 þúsund kr. fátækari - og ellefu dagar í brottför. Ég mun gera dauðaleit á morgun, og ef ekkert finnst, halda í sendiráðið og fá útgefið neyðarvegabréf.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta gerist bara fyrir þig;)

SKJ

Auðbergur sagði...

Nei og ég hef fjöldamörg önnur dæmi úr sendiráðsferð minni í dag. Það er fullt af fólki sem er alveg jafnvitlaust og ég.