mánudagur, 1. desember 2008

Mótmælin í París

Þau voru miklu skemmtilegri en ég bjóst við, mótmælin sem skipulögð voru í dag kl. 14 fyrir framan sendiráð Íslands. Ég taldi 22, en tölum ber ekki saman og engar opinberar tölur hafa verið gefnar út. Þetta fór allt friðsamlega fram, enda held ég að við erlendu Íslendingar höfum misst af þeirri þróun um harkaleg mótmæli sem hefur orðið heima, og til vitnis um það var engum eggjum kastað á skrifstofur sendiráðsins. Þá var enginn handtekinn, þrátt fyrir að lögreglan mætti á svæðið.

Ég mætti þarna akkúrat 15 mín. of seint, einsog manni er kennt að gera í París. Ég held að reglan sé hálftími, klukkutími á Íslandi, og reyndar meira en það hjá sumum sem ég þekki. Og á þeirri stundu var fólk að hrópa einhver slagorð og glósur á ríkisstjórnina, og ég tók að einhverju leyti þátt, allavega eins mikið og ég gat. Næst byrjaði fólk að syngja ættjarðarljóð og þá kom ég sjálfum mér á óvart. Ég kunni bara ekki nokkurn skapaðan texta. Hverjum get ég kennt um það? Ég söng hátt og skýrt þegar Öxar við ána var sungið en allt annað (og þmt. þjóðsönginn) kunni ég ekki!

Tómst Olrich kom og heilsaði upp á okkur og tveir héldu mjög góðar ræður. Eftir öll þessi ósköp fórum við á kaffihús í grenndinni og var það mjög gaman. Það var ákveðinn léttir að vera innan um einhverja Íslendinga eftir allan þennan tíma! Ég vona að það muni skipuleggjast eitthvað í kringum þennan Íslendingahóp og hann halda áfram að hittast.

Það kom mér sérstaklega á óvart hversu lítilfjörlegt og ótilkomumikið Íslenska sendiráðið er. Menn eru alltaf að tala um bruðl í utanríkisþjónustunni. Ekki var neitt slíkt að sjá þarna. Það lá við að ég skammaðist mín. Skokkhringurinn minn liggur meira að segja þarna framhjá og ég hafði aldrei tekið eftir neinu tengt Íslandi við þessa götu; enginn fáni, varla nein ummerki. Það sést kannski hvað ég er að meina á þessari mynd:

Þarna má sjá glitta í starfsfólk sendiráðsins húka í einhverri risíbúð sem á að vera hið glæsilega Sendiráð íslenska lýðveldisins. Kannski við hæfi í dag.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Lifi byltingin!

Auðbergur sagði...

Ertu ekki ánægður með mig, Brynjar? Maður orðinn róttækur.

Nafnlaus sagði...

Þú ert hálfgerður Che Guevara. Ferð til annars lands þar sem þú setur allt á hvolf. Please ekki samt fara til Perú og reyna þetta þar!

Nafnlaus sagði...

Meinti auðvitað Bólivíu.

Auðbergur sagði...

Hehe já, hver veit nema ég reyni þetta bara heima á Íslandi. Er ekki þörf á því?

Nafnlaus sagði...

Ég og mamma vorum í bílnum með fréttirnar á en ég var eiginlega ekkert að hlusta á þær. Svo heyrir maður bara nafnið Auðbergur Daníel og ég hlusta svo á restina af fréttinni. Þetta var frekar fyndið, ekki eitthvað sem maður bjóst við. Litli bróðir í útlöndum og maður fær að heyra frá honum í fréttunum :)